Hafþór Júlíus Björnsson kemur ekki til með að leika í nýjustu kvikmyndinni um njósnara hennar hátignar. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun New York Times um Hafþór.
Þar segir hann meðal annars að þegar aðstandendur Game of Thrones höfðu samband við hann, þá hafi hann ekki svarað fyrsta póstinum frá því - hann hélt það væri verið að fíflast í sér.
Þegar í ljós kom að annar „risi“ hafði fengið hlutverkið í Bond-myndinni þá var Hafþór skiljanlega ekki sáttur. Í umfjölluninni segir þó að hann hafi fljótlega horft á björtu hliðarnar, því allar líkur væru á að tökur á myndinni myndu skarast við keppnina um sterkasta mann heims, eitthvað sem hann væri ekki tilbúinn að fórna.