Förðunarfræðingur Kim Kardashian West gegndi mikilvægu hlutverki á tökustað þegar myndin fyrir forsíðu Paper Magazine var tekin. Hann átti nefnilega að bera olíu á einn frægasta rass heims.
Förðunarfræðingurinn Mario Dedivanovic ber ábyrgð á olíuborna rassinum sem hefur gert allt vitlaust undanfarið. Dedivanovic segir að galdurinn sé einfaldlega hefðbundin barnaolía. „Ég veit ekki hvað þessi olía heitir en þetta er bara venjuleg barnaolía frá Evrópu. Ég úðaði olíunni bara beint á líkama hennar. Það eru allir að spyrja mig út í þetta, það er klikkað,“ sagði Dedivanovic í viðtali við New York Daily News.
Dedivanovic segir myndatökuna hafa verið „lokaða“. „Þetta var bara ég, Kim og ljósmyndarinn. Hann skissaði upp hvað hann vildi gera og við gerðum það. Þetta var mjög skemmtileg myndataka.“