Beyoncé með flestar tilnefningar

Beyoncé Knowles er sá tónlistarmaður sem oftast hefur verið tilnefndur …
Beyoncé Knowles er sá tónlistarmaður sem oftast hefur verið tilnefndur til Grammy verðlaunanna. AFP

 Í dag sló Beyoncé Knowles metið sem sú tónlistarkona sem fengið hefur flestar tilnefningar til Grammy verðlaunanna. Beyoncé og Dolly Parton höfðu fram að þessu verið jafnar, með 46 tilnefningar hvor, en Beyoncé skaust vel fram úr Dolly í dag þegar hún var tilnefnd til fimm Grammy verðlauna í viðbót.

Parton hefur unnið sjö Grammy verðlaun alls, þau nýlegustu árið 2001. Beyoncé á aftur á móti 17 slík verðlaun og er því í þriðja sæti yfir mest verðlaunuðu konur hátíðarinnar en aðeins Aretha Franklin (18 verðlaun) og Alison Krauss (27 verðlaun) skjóta henni ref fyrir rass. Þá deilir Beyoncé metinu fyrir flest Grammy verðlaun á einni hátíð með Adele.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach