Lágfiðlu- og píanóleikaranum Bjarna Frímanni Bjarnasyni verður í upphafi nýs árs veitt viðurkenning úr styrktarsjóði Önnu K. Nordal og er þetta í fimmtánda sinn sem viðurkenning er veitt úr honum. Sjóðnum ber að styrkja efnilega tónlistarnema í söng og fíólínspili.
Af þessu tilefni verða haldnir tónleikar í Salnum laugardaginn 3. janúar með Bjarna Frímanni og söngvaranum Kristjáni Jóhannessyni, en hann hlaut einmitt sömu viðurkenningu í ár. Á tónleikunum munu þeir flytja fjölbreytta efnisskrá ásamt Jónasi Ingimundarsyni þar sem lágfiðla, píanó og söngur koma við sögu.
Bjarni Frímann Bjarnason er fæddur árið 1989 og hóf að leika á fiðlu fjögurra ára gamall og stundaði nám hjá Lilju Hjaltadóttur og Guðnýju Guðmundsdóttur. Hann lauk prófi í lágfiðluleik frá Listaháskóla Íslands vorið 2009. Sama ár bar hann sigur úr býtum í einleikarakeppni skólans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og lék lágfiðlukonsert Bartóks með sveitinni á tónleikum í janúar.
Frá 2011 hefur hann stundað nám í hljómsveitarstjórn undir handleiðslu Fred Buttkewitz við Tónlistarháskólann Hanns Eisler í Berlín. Vorið 2012 vann hann fyrstu verðlaun í Hanns Eisler-keppninni í Berlín fyrir frumflutning á píanótilbrigðum eftir Viktor Orra Árnason ásamt öðrum verðlaunum fyrir frumflutning á píanókonsert eftir Ansgar Beste. Sama ár hlaut hann undirleikaraverðlaunin í ljóðasöngskeppni sem kennd er við Paulu Salomon-Lindberg í sömu borg.
Bjarni hefur komið fram víðsvegar um Evrópu, bæði sem strengja- og hljómborðsleikari. Hann stjórnar strengjasveitinni Skark, sem hefur á undanförnum árum staðið fyrir nýstárlegum flutningi nútímatónlistar. Þá stjórnaði hann Sinfóníuhljómsveit Unga Fólksins á tónleikum hennar á Siglufirði og í Reykjavík í júlí 2014.