Engar breytingar hafa orðið á líðan Bobbi Kristinu Brown síðastliðna viku. Ekki stendur til að slökkva á tækjum sem halda henni á lífi í þessari viku að sögn lögfræðings föður hennar, Bobby Brown. People greinir frá þessu.
Á miðvikudaginn í síðustu viku, 11. febrúar, voru liðin þrjú ár frá andláti móður Bobbi, Whitney Houston. Slúðurmiðlar héldu því margir hverjir fram að til stæði að tækin yrðu tekin úr sambandi þann sama dag. Svo virðist aftur á móti ekki vera og liggur Bobbi enn á sjúkrahúsi í Atlanta í Georgíu.