Stuttmyndin Frozen Fever verður sýnd á undan Disney myndinni Öskubusku í kvikmyndahúsum en sú verður frumsýnd þann 13. mars.
Af stiklunni hér að neðan að dæma segir stuttmyndin frá afmælisdegi Önnu og virðist elsa drottning ætla að gera sitt besta til að dagurinn verði stórkostlegur í alla staði. Það eru jafnvel dansandi snjókallabörn í veislunni.
Stikluna í heild sinni má sjá hér að neðan.