Lögreglan á Suðurnesjum hefur hafið rannsókn á mjög svo undarlegu „sakamáli“.
„Eins og allir vita þá hefur veðrið ekki verið að leika við okkur undanfarnar vikur og hefur hver lægðin á fætur annarri verið að trufla okkur,“ segir í færslu lögreglunnar á Facebook um málið. „Nú í morgun gerðist sá atburður að sól fór að skína okkur til mikillar gleði. Ekki stóð þessi gleði lengi yfir.“
Hér að neðan má lesa færsluna í heild.