Breski grínistinn Eddie Izzard er væntanlegur til landsins. Sumir viðburðir eru auglýstir með margra mánuða fyrirvara en svo er ekki að þessu sinni þar sem grínistinn er væntanlegur næstu helgi.
Izzard mun skemmta í Eldborg í Hörpu næsta laugardag og hefst miðasala á miðvikudaginn kl. 10.
Í tilkynningu segir að Izzard hafi gert það að listformi að rífa kjaft og hafi átt ótrúlegu fylgi að fagna um allan heim síðastliðin ár.