Mila Kunis og Ashton Kutcher eru gift

Ashton Kutcher og Mila Kunis giftu sig í laumi.
Ashton Kutcher og Mila Kunis giftu sig í laumi. AFP

Leikkonan Mila Kunis og leikarinn Ashton Kutcher eru hjón. Þetta kom í ljós í spjallþættinum The Late Late Show með James Corden. Kunis og Kutcher eru þekkt fyrir að fara leynt með sín persónulegu mál en þáttastjórnandinn Corden þrýsti á Kunis þar til hún viðurkenndi að þau væru gift.

 „Annað hvort ertu gift eða ekki,“ sagði Corden. „Kannski,“ svaraði Kunis þá. En Corden benti á glæsilegan hring sem Kunis bar á baugfingri og sagði: „Þau eru gift, sjáið.“ Þá roðnaði Kunis og svaraði engu.

Viðstaddir sögðu þá Corden hafa beðið Kunis afsökunar í hléi á að hafa uppljóstrað leyndarmálinu en Kunis sagði það vera allt í lagi. Þessu var greint frá á Contactmusic.com.

Kunis og Kutcher hafa verið gift saman frá árinu 2012 og saman eiga þau eitt barn sem kom í heiminn í október á seinasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg