65 ára gömul kona í Berlín, sem þegar á þrettán börn, gengur nú með fjórbura. Þýskir fjölmiðlar sögðu frá þessu í dag. Þar kemur fram að konan, sem heitir Annegret Raunigk og starfar sem kennari, hafi ákveðið að reyna að eignast eitt barn í viðbót eftir að dóttir hennar óskaði eftir systkini.
Raunigk hófst handa og fór í nokkrar tæknisæðingar og tók það ferli um eitt og hálft ár. Þýska sjónvarpsstöðin RTL mun birta viðtal við konuna annað kvöld. Auk barnanna þrettán á konan sjö barnabörn.
Á vefsíðu RTL kemur fram að meðgangan hafi hingað til gengið vel og Raunigk eigi von á sér í sumar. Þá verður hún elsta fjórburamamma heims.
Þýska dagblaðið Bild hefur einnig sagt frá óléttunni og hefur eftir Raunigk að fréttirnar hafi komið henni á óvart. „Eftir að læknirinn sá að það voru fjögur börn þurfti ég að velta þessu aðeins fyrir mér,“ sagði Raunigk í samtali við Bild. Það stóð þó aldrei til að fækka fósturvísum að sögn Raunigk.
Raunigk birtist einnig í viðtali hjá Bild þegar hún eignaðist síðast barn fyrir tíu árum. Það var þá þrettánda barnið hennar. Í því viðtali sagði Raunigk að hún hefði áður fyrr séð fyrir sér að eignast aðeins eitt barn.
Í frétt RTL má sjá stiklu úr viðtalinu við Raunigk sem sýnt verður annað kvöld.