Fyrstu fjórum þáttunum í fimmtu þáttaröð sjónvarpsþáttarins Game of Thrones hefur verið lekið á netið. Fyrsti þátturinn verður frumsýndur í Bandaríkjunum sem og hér á landi í kvöld.
Þættina fjóra má nú finna á vinsælum „torrentsíðum“ á netinu og hafa fjölmargir nú þegar halað þeim niður.
Talið er að rekja megi lekann til DVD-diska sem nokkrir fjölmiðlamenn og gagnrýnendur fengu af fyrstu þáttunum fyrir nokkru.
Aðdáendur sjónvarpsþáttanna hafa beðið með öndina í hálsinum eftir fimmtu seríunni og hafa þættirnir þegar hlotið mikið lof gagnrýnenda, en hlutar þeirra hafa verið teknir upp á Íslandi.