Hrútar fara á Cannes

Tökur á myndinni fóru fram á bæjunum Mýri og Bólstað, …
Tökur á myndinni fóru fram á bæjunum Mýri og Bólstað, sem staðsettir eru hlið við hlið í Bárðardal á Norðurlandi.

Hrútar, nýjasta kvikmynd Gríms Hákonarsonar, hefur verið valin til þátttöku í Un Certain Regard keppni Cannes kvikmyndahátíðarinnar. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í París í dag þar sem kynntar voru þær myndir sem eru hluti af Cannes Official Selection í ár.

Hátíðin mun fara fram frá 13. – 24. maí. Um er að ræða heimsfrumsýningu myndarinnar. Af um 4 þúsund myndum sem sóttu um komust aðeins tuttugu að og munu keppa um aðalverðlaunin „Prix Un Certain Regard.“

Hrútar fjallar um tvo sauðfjárbændur á sjötugsaldri, bræðurna Gumma og Kidda, sem búa hlið við hlið í afskekktum dal á Norðurlandi. Fjárstofn þeirra bræðra þykir einn sá besti á landinu og eru þeir margverðlaunaðir fyrir hrútana sína.

Þrátt fyrir að deila sama landi og lífsviðurværi þá hafa bræðurnir ekki talast við í fjóra áratugi. Þegar riðuveiki kemur upp í dalnum grípur um sig mikil örvænting á meðal bændanna þar. Yfirvöld ákveða að skera niður allt sauðfé til þess að sporna við útbreiðslu sjúkdómsins. Bræðurnir standa frammi fyrir því að missa það sem er þeim kærast og grípa til sinna ráða.

Tökur fóru fram á bæjunum Mýri og Bólstað, sem staðsettir eru hlið við hlið í Bárðardal á Norðurlandi.

Grímur Hákonarson leikstýrir og skrifar handritið að Hrútum. Aðalframleiðandi myndarinnar er Grímar Jónsson fyrir Netop Films og meðframleiðendur eru hin dönsku Ditte Milsted og Jacob Jarek fyrir Profile Pictures. Þá er Þórir Snær Sigurjónsson einn af framleiðendum myndarinnar. Framleiðslustjórn er í höndum Evu Sigurðardóttur.

Með aðalhlutverk fara Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Norðmannsins Sturla Brandth Grøvlen og Kristján Loðmfjörð sér um klippingu myndarinnar. Tónlist myndarinnar er samin af Atla Örvarssyni og hljóðhönnun er í höndum Huldars Freys Arnarssonar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Mest spennandi uppákoma dagsins felst í óvæntum glaðningi frá börnunum. Ekki láta tafir slá þig út af laginu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Mest spennandi uppákoma dagsins felst í óvæntum glaðningi frá börnunum. Ekki láta tafir slá þig út af laginu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Ragnar Jónasson