Úrslitakeppni Skólahreystis fór fram í Laugardalshöll í kvöld með pompi og prakt. Var þar mikið um dýrðir þar sem lið 12 skóla af landinu öllu öttu kappi eftir að hafa ýmist sigrað eða orðið í öðru sæti í undankeppnum sem farið hafa fram á síðustu mánuðum.
Finnur Helgason tók sigurinn fyrir Réttarholtsskóla í fyrstu greininni með 52 upphífingar, aðeins sex upphífingum frá Íslandsmeti og Réttarholtsskóli sigraði einnig í hreystigreip þar sem Katarína Eik Sigurjónsdóttir sýndi það og sannaði að hún gæti hangið stúlkna lengst í heilar 8 mínútur og 28 sekúndur.
Arnar Másson náði fyrsta sætinu í dýfum fyrir hönd Lindaskóla en það var Katla Björk Ketilsdóttir sem sigraði armbeygjukeppnina með 54 slíkum fyrir hönd Holtaskóla. Holtaskóli varð í öðru sæti í hraðabrautinni en þar var það hinsvegar Heiðarskóli sem kom sá og sigraði á tímanum 2:06. Skólinn hafði fengið varamann inn þar sem annar aðalmaður hafði snúið sig á ökla síðustu helgi en það kom ekki að sök þar sem aðeins munaði einni sekúndu á árangri liðsins og Íslandsmeti Lágafellsskóla.
Þegar öll stig voru talin saman var það Holtaskóli sem stóð uppi sem sigurvegari. Réttarholtsskóli varð í öðru sæti og Lindaskóli í Kópavogi í því þriðja.
Þrír af fjórum keppendum Holtaskóla voru að taka þátt í fyrsta skipti. Þau Þóranna Kika Hodges-Carr og Eggert Gunnarsson kepptu fyrir hönd skólans í hraðaþraut. Katla Ketilsdóttir tók armbeygjur og hreystigreip en Hafþór Logi Bjarnason keppti í dýfum og upphífingum. Þjálfari liðsins er Einar Guðberg Einarsson.