Allt er að verða tilbúið fyrir tónleika Ásgeirs Trausta á Esjunni í kvöld, en búið er að setja upp sviðið og verið er að klára að tengja hátalara og aðrar græjur. Eftir rúmlega hálftíma mun Dj Yamaho byrja að spila, en klukkan 20 stígur Ásgeir Trausti á svið og gefur forsmekk af tónleikum sínum sem verða í Hörpu þann 16. júní.
Tónleikarnir fara fram hjá Steini og frítt er inn. Þyrluþjónusta verður fyrir gesti gegn gjaldi, en flogið er frá Esjurótum.
Ásgeir Trausti og hljómsveit hafa undanfarin rúm tvö ár verið á flakki um heiminn til að fylgja eftir útgáfu plötunnar Dýrð í dauðaþögn. Þeir eru nýkomnir heim af tónleikaferðalagi um Ástralíu með bresku hljómsveitinni Alt-J, en þar spiluðu þeir í fimm borgum fyrir um fjörutíu þúsund manns. Ásgeir hefur tilkynnt það að tónleikar hans í Hörpu verði þeir allra síðustu í bili eða þangað til næsta plata kemur út svo nú fer hver að verða síðastur að skella sér á tónleika með tónlistarmanninum unga.