Líkamsvirðing er lykilorðið í nýju myndbandi sem íslenski listahópurinn The Weird Girls, undir stjórn Kitty Von- Sometime, hefur sent frá sér við lagið „Dim the lights“ með raftónlistardúettnum CREEP og áströlsku tónlistarkonunni Sia.
Myndbandið #EmbraceYourself sýnir gullhúðaða og glansandi líkama skrítnu stelpnanna dansa og liggja í einni kös en líkt og áður vissi enginn kvennanna hvað til stóð áður en tökur hófust.
Myndbandið er sannkallað augnayndi og ekki verra fyrir sálina enda kristallast grunnskilaboð myndbandsins í titli þess sem hvetur áhorfandann til að taka sig og líkama sinn í sátt, óháð hefðbundnum fegurðarstöðlum.