Mariah Carey er sögð vera að slá sér upp með milljarðamæringnum James Packer, ári eftir að hún skildi við eiginmann sinn Nick Cannon. Cannon var 11 árum yngri en Mariah, sem er 45 ára, en Pecker er tveimur árum eldri en hún.
Daily Mail og US Magazine hafa birt myndir af parinu. Þau ganga hönd í hönd um stræti ítalska bæjarins Capri
James Packer er sonur fjölmiðlamannsins Kerry Packer. Auðæfi hans eru talin vera um 7,7 milljarðar Bandaríkjadala.
Carey sjálf hefur ekki tjáð sig beint um orðróminn en birti þó í gær mynd á Instagram-síðu sinni með textanum úr lagi hennar Thank God I Found You. Mætti því lesa út úr því að hún hafi fundið ástina.