Rétt í þessu var ráðist á tónlistarmanninn Bam Margera í húsnæðinu sem hýsir fjölmiðlamenn, starfslið og tónlistarfólk á Secret Solstice hátíðinni. Samkvæmt upplýsingum mbl.is var Bam með blóðnasir og sá á honum. Lögreglan var fljót á vettvang og er húsnæðið nú lokað. Samkvæmt því sem mbl.is kemst næst var það hópur manna sem réðst á Bam, en ekki er vitað um ástæðu árásarinnar.
Bam þekkir vel til Íslands, en hann gifti sig meðal annars hér á landi. Þá er hefur hann komið hingað sem hluti af Jackass hópnum, en auk Jackass þáttanna var Bam með þættina Viva la Bam á Mtv sjónvarpsstöðinni.