„Ég held ég sé búin að finna þann eina.“ Þannig hefst texti Konubarna við lagið Reykjavíkurrómans - Óður til ástarinnar. Eftir því sem lagið heldur áfram fer maður ósjálfrátt að draga það í efa.
Lagið flytja þær Ebba Katrín Finnsdóttir, Eygló Hilmarsdóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir, sem tilheyra áðurnefndum leikhóp.
Í laginu lýsa þær erfiðleikunum sem mæta þeim sem eru í makaleit í Reykjavíkurborg, yfirleitt löngu eftir miðnætti um helgar og í heldur misjöfnu ástandi. Lagið er vægast sagt skondið og hnyttið, eins og heyra má í myndbandinu hér að neðan.
Reykjavíkurrómans - Óður til ástarinnar
Posted by Konubörn on Monday, June 29, 2015