Túristun er mjög vinsæll liður í netþættinum Áttan og fara þeir félagar í miðbæinn og rista túrista. Í þetta skiptið fá þeir Evu Guðmundsdóttur, sem sló eftirminnilega í gegn í óþægilega starfsviðtalinu, til þess að rista túristana. Hún fær túrista til sín í viðtal.
Hún leitar uppi pör til þess að fá til sín í viðtal og talar svo eingöngu við karlinn. Einnig er hún að gefa honum undir fótinn og skapa smá usla á milli parsins sem hún er að taka viðtal við hverju sinni.
Þetta er sprenghlægilegur liður og er mjög áhugavert að sjá viðbrögð karlanna og svo kvennanna, sem er alls ekki sáttar við þessa viðreynslu í miðju viðtali.
Ekki láta þessa túristun framhjá þér fara og er hægt að sjá fleiri túristanir inná vefslóð þáttarins www.mbl.is/attan og þar eru einnig þættirnir í heild sinni.
Fylgist þið meira með þeim hér:
www.facebook.com/attanofficial
www.instagram.com/attan_official
Snapchat: ATTAN_OFFICIAL
Watchbox: #attan_offical