Myndir: Heimilislegt í Dúfnahólum 10

Það hljómar kannski of gott til að vera satt en í kvöld verður loksins hægt að fara í sögufrægasta partý Íslandssögunnar í Dúfnahólum 10.

Þeir Unnar Helgi Daníelsson og Arnar Finnur Arnarsson eru mennirnir á bakvið nýjan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur, við Hafnarstræti, sem heitir eftir þessu merka heimilisfangi úr kvikmyndinni Sódómu Reykjavík og er innréttaður eins og heimili, með svefnherbergi og öllu tilheyrandi.

„Þessi hugmynd hefur legið í loftinu í mörg ár, að slá heimapartýi og skemmtistað saman í eitt. Svo kom nafnið Dúfnahólar 10 upp á hjá félaga okkar og okkur fannst það passa vel við pælinguna, það er alíslenskt og vísar í frægasta partý Íslandssögunnar,“ segir Unnar Helgi. „Sumir segja að við séum svolítið bilaðir en mér finnst þetta brilllíant konsept.

Ástríðuverkefni æskufélaga

Unnar Helgi hefur sinnt sumum ríkustu ferðamönnum heims á síðustu árum í gegnum lúxusferðaþjónustufyrirtæki sitt Reykjavík Rocks. Þeir Arnar voru bestu vinir í æsku, allt frá tveggja ára aldri, en höfðu ekki hist í fjögur ár þegar þeim bauðst húsnæðið á Zimsen. „Svo bara datt þetta upp á borðið og þessi staður tengdi okkur saman aftur,“ segir Unnar og hlær þegar blaðamaður sleppir út úr sér ílangri krúttstunu. „Ég ætti kannski ekki að segja meira svo lesendur fari ekki að skæla?“ spyr hann glettnislega en bætir svo við að þeir Arnar séu félagar í einu og öllu og taki allar ákvarðanir saman.

Húsnæðið bauðst þeim fyrir tveimur og hálfum mánuði og þeir Unnar og Arnar hafa vart séð framan í fjölskyldu og vini síðan fyrir vinnu við staðinn. Tveir mánuðir eru knappur tími til að setja upp skemmtistað og þegar blaðamaður nær tali af Unnari er Arnar búinn að eyða næstum heilum sólarhring í Dúfnahólum 10 við að klára það sem þarf fyrir opnunarteiti kvöldsins. Heyra má á Unnari að hann hefur margt þarfara að gera en að ræða við undirritaða en á sama tíma er spennan fyrir ástríðuverkefni þeirra félaga svo mikil að hann getur ekki stillt sig um að segja betur frá því sem framundan er.

„Við munum leggja upp með að vera alltaf með óvæntar uppákomur um helgar, það verður ekki bara plötusnúður heldur verður alltaf eitthvað sem fólk getur tekið með sér. Við viljum krydda aðeins upp á upplifunina við að fara á skemmtistað.“

Tannburstar og föt til skiptana

Nóg er kryddið fyrir því Dúfnahólar 10 verða stútfullir af hlutum sem kæmu spánskt fyrir sjónir á öðrum skemmtistöðum. Rýminu er skipt upp í herbergi og eru svefnherbergi, garðhýsi og eldhús þar á meðal. Unnar segir þá félaga búna að fá og kaupa húsgögn úr öllum áttum og að staðurinn eigi sér í raun mikla sögu nú þegar því eigendur húsgagnanna sem nú prýða Dúfnahóla séu óteljandi.

„Við erum með 50 ára gamalt píanó og við erum með skenk sem er 100 ára ásamt gömlum rokkókó sófum sem við erum búnir að láta bólstra. Það verður hægt að grípa í píanóið en aðallega á virku kvöldunum því ég held að tónlistin muni yfirgnæfa það um helgar,“ segir Unnar. „Svo erum við  með flottasta reykingasvæði bæjarins með gervigrasi á gólfinu, það er viðarklæðning á veggjunum og við erum búnir að gróðursetja blóm.“

Ýmsir smáhlutir sem undirstrika heimateitis-andann í Dúfnahólum, þar á meðal pottar og pönnur við gamla, nýuppgerða eldhúsinnréttingu, tannbursta og tannkrem á baðherbergjunum og föt í skápunum í svefnherberginu.

Nú myndi margur doka við og hugsa, „Það er kannski ástæða fyrir því að maður heldur ekki 300 manna partý heima?“ en ekki Arnar og Unnar sem hafa litlar áhyggjur af því þó blómin í garðinum verði tröðkuð niður eða fötin rifin úr skápunum.

„Það er partur af því að vera með skemmtistað, fólk er að skemmta sér. Við borum auðvitað pottana og pönnurnar við veggina en ef einhver vill nota tannbursta er viðkomandi það velkomið. Ég myndi hinsvegar ekki gera það,“ segir Unnar kíminn.

Bara Unnur á barnum

Það er ekki hægt að opna skemmtistað með viðlíka nafni án þess að hann innihaldi vísanir í Sódómu Reykjavík. Boðið verður upp á Spur kokteil og búið er að bræða fjarstýringu við einn sófann.Í kvöld verður gamla konan á sínum stað í rúminu en þar að auki eru að sjálfsögðu gullfiskar í baðkarinu.

„Baðkarið er borð hérna inni á staðnum en það virkar samt alfarið eins og fiskabúr. Við erum búnir að ráðfæra okkur við sérfræðinga með þetta svo allt sé í góðu,“ segir Unnar. „Það eru 700 lítrar af vatni í baðinu, þetta er í raun bara fullt baðkar og ef plexíglerið væri ekki fyrir gæti fólk bara fengið sér dýfu.

Sumar vísanir eru illframkvæmanlegar eða beinlínis hættulegar. Múrsteinninn með bréfinu góða fær t.a.m. ekki að vera á staðnum enda gæti hann hæglega verið nýttur sem vopn.

„Við ætluðum að hafa bara stelpur á barnum sem heita Unnur, það hefði verið ógeðslega fyndið en gekk ekki upp. Kannski setjum við nafnspjöld á allar stelpurnar hjá okkur með nafninu Unnur.“

Önnur hugmynd sem ekki fékk að rætast var að hafa dyraverðina í rómverskum klæðum líkt og dyraverðina á skemmtistaðnum Sódómu. „Við verðum að halda ákveðnum prinsipp atriðum í lagi. Við gerum þetta samt pottþétt eitt kvöldið, hver veit hvort það verði einhver í rómverskum klæðum í kvöld.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar