Bill Gates og fylgdarlið hans er nú statt á Íslandi og í dag fór hann í siglingu með Stóra Erni, skemmtibát Rib Safari. Frá þessu er greint á vef Eyjafrétta.
Þar segir að hann hafi komið til eyjunnar um hádegi með þyrlu og tók hópur lífvarða á móti þeim. Var haldið niður að bryggju og um borð í Stóra Örn. Sigldi hann umhverfis eyjarnar, meðal annars í Æðarhelli. Komu þau svo í land um klukkan hálf fjögur í dag og skoðuðu bæinn.
Á vef Eyjafrétta má sjá myndir af Gates í Vestmannaeyjum.