Róbert Úlfarsson kveður nú netþáttinn Áttuna eftir að hafa verið í honum frá upphafi. Róbert kynntist Nökkva og Agli í Versló og voru þeir saman í verslóþættinum 12:00. Róbert hefur sýnt margar kúnstir á þessu tímabili sem hann hefur verið í 12:00, Áttunni og verður hans sárt saknað.
Róbert hefur fengið titilinn fyndni gaurinn í þáttunum og á hann mjög auðvelt með að fá fólk til þess að hlæja.
Í síðasta þætti hans í Áttunni og jafnframt síðasta þætti sumarsins var gert kveðjumyndband og fylgir það með þessari grein.
Róbert heldur nú vestur um haf í skóla í Flórída.
Róbert er efnilegur sjónvarpsmaður sem á vonandi eftir að láta meira að sér kveða í þessum bransa í framtíðinni.
Ef þú hefur áhuga á þessu myndbroti ekki láta önnur myndbrot frá Áttunni framhjá þér fara inná
Vilt þú sjá meira?
SnapChat: Attan_official
Watchbox: #Attan_official