Tónlistarfólkið Selena Gomez og Nick Jonas voru eitt sinn par en sambandið gekk ekki upp. Þau virðast þó vera að kveikja í gömlum neistum því þau gátu ekki tekið augun af hvort öðru á MTV Video verðlaunahátíðinni að sögn viðstaddra.
Þau döðruðu við hvort annað og virtust náin í eftirpartíi eftir hátíðina á sunnudaginn. „Hann var alltaf að hvísla í eyra hennar,“ sagði heimildamaður New York Post.
Selena Gomez og Nick Jonas voru saman í tvö ár til ársins 2010. Síðan þá hafa þau bæði verið í öðrum samböndum en nú virðist eitthvað vera á milli þeirra á nýjan leik.