Leikarinn Jon Hamm, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Mad Men, er að skilja við eiginkonu sína, Jennifer Westfeldt. Þessu greindu þau frá í gær.
Hamm og Westfeldt hafa verið saman í rúm 18 ár. Þau gáfu frá sér yfirlýsingu til People í gær þar sem fram kom að þau væru að skilja.
Þau kváðust vera miður sín en ákveðin í að fara í sitthvora áttina. „Við munum halda áfram að styðja við bakið á hvort öðru,“ sagði meðal annars í yfirlýsingunni.
Sá orðrómur um að samband þeirra hafi hangið á bláþræði komst á kreik fyrir nokkrum mánuðum síðan þegar Hamm fór í meðferð vegna alkahólisma.