Margra mánaða endurhæfing framundan

Lamar Odom og Khloé Kardashian þegar allt lék í lyndi.
Lamar Odom og Khloé Kardashian þegar allt lék í lyndi. AFP

Heilsa Lamar Odom batnar nú dag frá degi en heimildir E! News herma að margra mánaða endurhæfing bíði körfuknattleikskappans. Odom er sagður geta hreyft handleggi og fætur, en hann getur ekki staðið. Eiginkona Odom, Khloé Kardashian, er sögð sofa í sama herbergi og kappinn og fylgja honum í rannsóknir.

Odom er háður vélum vegna nýrnabilunar en hefur tekist að kyngja, sem þykir góðs viti, og tjáir sig með handahreyfingum. Þá gengur honum vel að anda án aðstoðar.

Kardashian hefur ekki vikið frá Odom, en parið er enn gift þrátt fyrir að hafa undirritað skilnaðarpappíra. Skýringin ku vera álag hjá hinu opinbera. Samkvæmt E! News hefur Odom nokkrum sinnum tjáð sig við spúsu sína frá því hann vaknaði úr dái á föstudag og m.a. sagt „Hey, baby“ og „Góðan dag“.

Slúðurmiðillinn TMZ, sem greindi fyrstur frá því að Odom hefði fundist meðvitundarlaus í vændishúsi í Nevada, greinir frá því að körfuboltamaðurinn muni bæði þurfa að gangast undir líkamlega endurhæfingu og talþjálfun næstu mánuði. Þá séu líkur á að líkami hans hafi orðið fyir einhverjum skaða sem verði ekki bættur.

TMZ greinir einnig frá því að Kardashian hafi heitið því að vera Odom stoð og stytta í vegferð hans næstu misseri.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg