Bjóða Odom nýru

Lamar Odom og Kobe Bryant er þeir léku saman fyrir …
Lamar Odom og Kobe Bryant er þeir léku saman fyrir Los Angeles Lakers. mbl.is/AFP

Fjölmargir aðdáendur fyrrverandi körfuboltakappans Lamar Odoms hafa sett sig í samband við hann og eiginkonu hans, Khloé Kardashian, í gegnum samfélagsmiðla og boðist til að gefa Odom nýra.

Odom fannst, eins og frægt er orðið, rænulaus á vændishúsi eftir að hafa innbyrt gríðarlegt magn fíkniefna. Hann lá milli heims og helju á sjúkrahúsi um nokkurt skeið, en er nú á batavegi.

Eiginkona Odoms, raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian, hefur ekki vikið frá hlið Odoms, en nú hefur verið greint frá því að þau hafi dregið skilnaðarpappíra sína til baka. Hjónin slitu samvistum fyrir nokkru, en skilnaður þeirra hafði ekki gengið í gegn sökum anna hjá hinu opinbera.

Eftir að TMZ greindi frá því að nýru Odoms væru illa farin og hann þyrfti hugsanlega á gjafanýrum að halda hafa margir boðist til að rétta fram hjálparhönd.

Líkt og TMZ hefur greint frá vilja sumir gefa Odom nýra, á meðan aðrir eru tilbúnir að láta líffærið af hendi gegn greiðslu. Sumir ganga jafnvel svo langt að skilja eftir upplýsingar um blóðflokk, símanúmer og verðhugmynd.

Margir vilja rétta hjálparhönd.
Margir vilja rétta hjálparhönd. Skjáskot af TMZ
Aðdáendum Odoms er það hjartans mál að hann nái sér.
Aðdáendum Odoms er það hjartans mál að hann nái sér. Skjáskot af TMZ
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg