George og Amal Clooney ættleiða

George og Amal Clooney eru miklir dýravinir.
George og Amal Clooney eru miklir dýravinir. mbl.is/AFP

Leikarinn George Clooney og eiginkona hans, mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney, buðu nýjan fjölskyldumeðlim velkominn á dögunum.

Nýi fjölskyldumeðlimurinn, Millie, er fjögurra ára flækingshundur sem dvaldi á dýraathvarfinu San Gabriel Valley Humane Society. Hjónin, sem höfðu verið að leita sér að Bassett hundi, fundu mynd af tíkinni á Petfinder og urðu strax yfir sig hrifin.

Fyrir eiga hjónin annan hund af tegundinni Cocker Spaniel, sem einnig var flækingur. Að sögn talsmanns dýraathvarfsins kom hundunum vel saman, en hjónin kynntu þá áður en þau buðu Millie velkomna í fjölskylduna.

George er mikill dýravinur en hann hefur ekki bara átt hunda, árið 2006 dó gælusvínið hans Max, sem þá var 18 ára, líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.

George og Amal kynntu hundana áður en þau héldu heim …
George og Amal kynntu hundana áður en þau héldu heim á leið. Skjáskot sgvhumane.org
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið særður - það er gott að viðurkenna það. Nú þarftu að fá að sleikja sárin. Engum stendur ógn af metnaði þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið særður - það er gott að viðurkenna það. Nú þarftu að fá að sleikja sárin. Engum stendur ógn af metnaði þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Ragnar Jónasson