Brúðkaup ársins hjá fræga fólkinu

Leikkonan Sofia Vergara og leikarinn Joe Manganiello gengu í hjónaband …
Leikkonan Sofia Vergara og leikarinn Joe Manganiello gengu í hjónaband í gær Af Instagram síðu Vergara

Leikkonan Sofia Vergara og leikarinn Joe Manganiello gengu í hjónaband í gær og í afþreyingarheiminum er talað um brúðkaup ársins.

Vergara sem er fædd í Kólumbíu er hæst launaða leikkonan í bandarísku sjónvarpi en hún fer með aðalhlutverkið í þáttaröðinni Modern Family. Eiginmaðurinn, Manganiello leikur aftur á móti í The Breakers. 

Brúðkaupið fór fram á Palm Beach og var brúðkaupinu fagnað alla helgina. Vergara hefur birt myndir á Instagram frá brúðkaupinu þar sem brúðarkjóllinn leikur stórt hlutverk sem og brúðarvöndurinn, hvítar orkideur.

Meðal gesta í brúðkaupinu voru þau Reese Witherspoon, Channing Tatum og félagar hennar úr þáttunum Modern Family. Það var sonur hennar, Manolo, 23 ára, sem var svaramaður móður sinnar í brúðkaupinu.

Árið 2014 áætlaði Forbes að hún hefði 37 milljónir Bandaríkjadala í árstekjur fyrir hlutverkið í Modern Family sem er töluvert meira en mótleikari hennar, Ashton Kutcher, sem var með 26 milljónir dala í tekjur.

Manganiello er þekktastur fyrir hlutverk sitt í myndinni Magic Mike og þáttaröðinni How I Met Your Mother. Um það bil átján mánuðir eru síðan þau byrjuðu saman en þau trúlofuðu sig í desember í fyrra.

Sofia Vergara og Joe Manganiello
Sofia Vergara og Joe Manganiello AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg