„Mín kenning er sú að þeir allra reiðustu, þeir eru hans menn innst inni,“ segir Arnar Eggert Thoroddsen, félagsfræðingur og menningarblaðamaður, um athyglina og viðbrögðin sem uppátæki Almars Atlasonar, myndlistarnema, hefur vakið. mbl.is fékk Arnar Eggert til að rýna í kassann með nakta manninum.
Hann segir nektina leika stórt hlutverk í þessari miklu athygli og líka þá staðreynd að Almar hafi farið í þennan litla kassa. Það sé áþján sem veki samkennd fólks en með því að ganga svona langt sé hann að gera eitthvað sem marga langar til að gera en leggja kannski ekki í það.