Það kom að því að nýjustu Stjörnustríðsmyndinni, Star Wars: The Force Awakens, var velt af toppi aðsóknarlistans vestanhafs en það var löggu-grínmyndin Ride Along 2 sem steypti Han Solo af stóli.
Ride Along 2 halaði inn 34 milljónum dala og Stjörnustríðið varð meira að segja að láta sér þriðja sætið nægja, því næst vinsælasta mynd helgarinnar var dramað The Revenant, sem rakaði inn 29,5 milljónum dala.
Heildartekjur Star Wars-myndarinnar nýju nema nú 1,86 milljörðum Bandaríkjadala á heimsvísu og er hún þriðja tekjuhæsta mynd allra tíma.