Það hefur lengi verið orðrómur um að David Bowie hafi mögulega átt að koma fram í kvikmyndum Peter Jackson um Hringadróttinssögu. Nú hefur leikarinn Dominic Monaghan, sem fór með hlutverk hobbitans Meriadoc „Merry“ Bradbuck í myndunum, sagst hafa séð Bowie í áheyrnarprufum fyrir myndina. Monaghan lýsti því hvernig hann hafi séð Bowie á biðstofu umboðsskrifstofu stuttu eftir hans eigin áheyrnarprufu.
Ekki er vitað hvaða hlutverk Bowie hafði áhuga á að leika en sumir hafa séð hann fyrir sér sem álfakonunginn Elrond.
Í samtali við The Huffington Post sagðist Monaghan þó gera ráð fyrir því að Bowie hafi mætt til þess að lesa hlutverk Gandalfs gráa. „Ég get ekki ímyndað mér eitthvað annað hlutverk sem hann myndi lesa,“ sagði hann.
Í frétt The Independent kemur fram að Jackson hafi líklega ekki viljað Bowie í myndunum því frægð hans myndi mögulega taka athyglina af sögunni.