Næstkomandi laugardagskvöld fer seinni undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins fram í Háskólabíói. Sex lög taka þátt í keppninni líkt og fyrra kvöldið. Næstu vikuna mun mbl.is gefa lesendum sínum örlítið nánari innsýn í fólkið að baki hverju og einu lagi enda er mikilvægt að vanda valið þegar þjóðaríþróttin Eurovision er annars vegar.
„Lagið fjallar um aðskilnað,“ segir Magnús Thorlacius, annar höfunda og flytjenda lagsins „Ótöluð orð“.
„Þetta er ekkert svona svart og hvítt, það er ekkert sem er algjör aðskilnaður, það er alltaf eitthvað eftir,“ segir Erna Mist, hinn helmingur lagahöfunda og flytjenda dúósins, og Magnús er fljótur að grípa orðið aftur: „Þú getur aldrei sleppt einhverjum alveg... sem þú elskar.“
Þau Magnús og Erna skera sig úr hópi þátttakenda með ýmsum hætti. Þau eru yngstu þátttakendurnir í Söngvakeppni Sjónvarpsins þetta árið, aðeins 17 ára gömul. Þess utan er nándin sem birtist milli lagahöfundanna í flutningi lagsins hér að ofan sérlega ósvikin og innileg þar sem þessar krúttsprengjur Söngvakeppninnar eru kærustupar.
„Við byrjuðum að semja bara þegar við byrjuðum að deita,“ segir Magnús. Þegar þau eru beðin að rifja upp hvenær þau byrjuðu formlega saman kemur í ljós að það var þann 14. febrúar en forkeppnin fer einmitt fram daginn áður.
Það verður spennandi að sjá hvort Erna og Magnús fagni árs sambandi sínu sem keppendur í úrslitum Söngvakeppninnar.
Þrjú lög komast áfram úr hvorri undankeppni auk þess sem dómnefnd hefur möguleika á að hleypa sjöunda laginu áfram, telji hún það eiga sérstakt erindi í úrslit. Fylgist áfram með á mbl.is þar sem öllum keppendum verða gerð skil.