Íslenska sjónvarpsþáttaröðin Ófærð var frumsýnd á frönsku ríkisstöðinni France 2 í gærkvöldi og horfðu rúmlega 5 milljónir manns á fyrstu fjóra þættina sem voru allir sýndir sama kvöldið. Í Frakklandi heita þættirnir Trapped.
Samkvæmt upplýsingum frá RVK Studios, sem framleiðir þættina, voru tvær nýjar franskar seríur einnig verið frumsýndar í gærkvöldi og því bjuggust menn hjá France 2 ekki við að ný íslensk sería mundi halda í við það vinsælasta í frönsku sjónvarpi. Ófærð endaði hins vegar í öðru sæti með 18% hlutdeild.
„Fjölmiðlar í Frakklandi hafa slegið upp fréttum af þessum miklu vinsældum og þykir mönnum France 2 hafa sýnt hugrekki að tefla fram seríu frá Íslandi á besta sýningartíma. Í franska dagblaðinu Le Parisien birtist dómur í morgun þar sem þáttaröðin fær fjórar stjörnur af fimm og þykir jafnast á við hina bresku Broadchurch að gæðum.
Áhorfstölur sem þessar mundu teljast mjög góðar hvar í heiminum sem er. Til samanburðar má nefna að Fortitude þótti gera það gott á Sky með um 1 milljón áhorfenda og lokaþáttur Mad Men setti áhorfsmet á ACM kapalstöðinni í Bandaríkjunum með 3,4 milljón áhorfenda,“ að því er segir í tilkynningu frá RVK Studios.
Þættirnir eru einnig sýndir í Noregi í um þessar mundir. Þar horfa um það bil 500 þúsund áhorfendur á Ófærð í hverri viku.
Þá er búið að selja sýningarréttinn á Ófærð til Írlands, Ísraels, Mongólíu og Japans.