Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen og eiginmaður hennar Tom Brady stækkuðu fjölskylduna á dögunum þegar þau ættleiddu flækingshundinn Fluffy.
„Takk fyrir að leyfa okkur að bjarga þessum litla engli. Börnin eru himinlifandi með nýja fjölskyldumeðliminn. Fluffy er algert yndi“ greindi fyrirsætan frá á Instagram-síðu sinni.
A photo posted by Gisele Bündchen (@gisele) on Feb 24, 2016 at 6:16am PST
Hjónin eru greinilega miklir dýravinir, en fyrir eiga þau tvo aðra hunda.
Bündchen og Brady eru ekki einu stórstjörnurnar með hundadellu, því leikarinn George Clooney ættleiddi einnig flækingstíkina Millie á dögunum.