Dánarorsök Bobbi Kristina gefin upp

Bobbi Kristina Brown
Bobbi Kristina Brown AFP

Bobbi Kristina Brown, dóttir Whitney Houston og Bobby Brown, lét lífið af völdum drukknunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá krufningastjóra Fulton sýslu í Atlanta. Krufningarskýrslan í heild verður birt opinberlega seinna í dag.

Ekki er sagt til um hvort að talið sé að dauða Brown hafi borið að með saknæmum hætti eða hvort að um slys hafi verið að ræða. Nick Gordon, fyrrverandi kærasti Brown, hefur verið sakaður um að bera ábyrgð á dauða hennar en aldrei verið ákærður. 

Brown var aðeins 22 ára gömul þegar hún lést í júlí á síðasta ári en sex mánuðum áður fannst hún meðvitundarlaus í baðkari á heimili sínu í Atlanta. Samkvæmt yfirlýsingu krufningastjórans var Brown undir áhrifum eiturlyfja þegar að hún fannst. 

Frétt Sky News. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir