Fyrsta stiklan úr nýju Stjörnustríði

Ferfættir bryndrekar keisaradæmisins snúa aftur í myndinni.
Ferfættir bryndrekar keisaradæmisins snúa aftur í myndinni. Skjáskot af Youtube

Hulunni var lyft af söguþræði nýrrar Stjörnustríðsmyndar sem frumsýnd verður í desember í dag þegar fyrsta stiklan úr „Rogue One: A Star Wars Story“ var birt opinberlega. Í henni segir frá ævintýrum utangarðskonu sem gerist njósnari fyrir uppreisnarmennina.

Með aðalhlutverk í myndinni fara þau Felicity Jones, Mads Mikkelsen og Forest Whitaker en leikstjóri er Gareth Edwards. Jones fer með hlutverk vandræðagemlingsins Jyn Erso sem uppreisnarmennirnir fá til liðs við sig sem orrustuflugmann og njósnara sem er ætlað að stela teikningum að fyrsta Helstirninu.

Atburðir myndarinnar eiga að gerast eftir að þriðja kafla Stjörnustríðsbálksins lýkur en áður en sá fjórði hefst þar sem Logi geimgengill og félagar koma fyrst við sögu.

Áætlað er að myndin verði frumsýnd 16. desember á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sjaldnast vitum við alla söguna um annað fólk og því eigum við að fara okkur hægt í að dæma. Þú varpar öndinni léttar þegar þú færð fréttir af ættingja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sjaldnast vitum við alla söguna um annað fólk og því eigum við að fara okkur hægt í að dæma. Þú varpar öndinni léttar þegar þú færð fréttir af ættingja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir