Hertoginn af Cambridge og Harry Bretaprins áttu heldur betur viðburðarríkan dag en þeir heimsóttu Pinewood kvikmyndaverið í Lundúnum í dag en þar fara fram tökur á næstu Stjörnustríðs myndinni. Vilhjálmur og Harry voru á ferðinni ásamt forseta BAFTA og hittu allar helstu stjörnurnar sem aðdáendur myndanna þekkja svo vel.
Í Facebook færslu bresku konungsfjölskyldunnar kemur fram að Vilhjálmur og Harry hefðu hitt sérfræðiteymi sem vinna að gerð myndarinnar og eignast „nokkra nýja vini í leiðinni“ eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.