Svör Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, í samtali við bandarísku sjónvarpsstöðina CNN, þar sem hann hafnaði því alfarið að hann, Dorrit Moussaieff forsetafrú eða fjölskylda hans tengdist aflandsfélögum, hafa verið poppuð upp með því að blanda þeim saman við lagið No limits með hollensku hljómsveitinni 2 Unlimited.
Líkt og fjallað var um á mbl.is í kvöld hefur verið upplýst að fjölskylda Dorritar hafi átt aflandsfélag sem skráð var á Bresku jómfrúareyjar.