Eins og margir eflaust vita heldur Gwyneth Paltrow úti lífstílssíðunni Goop, sem lengi hefur verið nokkuð á milli tannanna á fólki.
Nú hefur leikkonan birt færslu á síðunni sem tileinkuð er kynlífshjálpartækjum sem hún segir vera í uppáhaldi.
„Kynlífshjálpartæki hafa þróast frá því að vera slapandi gúmmíhlutir sem þú felur í náttborðsskúffunni, yfir í að vera falleg, gagnvirk listaverk,“ segir á heimasíðu Paltrow,
Meðal þeirra unaðstóla sem talin eru upp er gervilimur húðaður 24 karata gulli, leðursvipa, handjárn og titrandi hálsmen sem einnig má nýta sem geirvörtuklemmu.
Raunar er þetta ekki eina færslan á Goop sem hverfist um kynlíf, enda mun maímánuður vera tileinkaður lystisemdum holdsins.