Hafþór Júlíus Björnsson sem margir þekkja undir nafninu Fjallið er þekktur kraftlyftingamaður og leikari. En áður en hann hóf feril sinn í kraftlyftingum spilaði Hafþór Júlíus með meistaraflokki KR í körfubolta.
The Telegraph fjallar um þær breytingar sem Hafþór Júlíus hefur tekið síðan hann var 17 ára árið 2006. Sjálfur sagði Hafþór Júlíus í viðtali við GQ að hann hefði hætt í körfuboltanum vegna meiðsla. „Ég var alltaf að meiða mig, slasaðist illa á ökkla og fór í aðgerð. Í seinna skiptið sem ég þurfti að fara í aðgerð ákvað ég að taka mér pásu frá þessu.“
Með tímanum fór Hafþór Júlíus að geta lyft meiri þyngdum. „Ég varð ástfanginn af kraftlyftingum og sá strax árangur.“
Í grein The Telegraph er einnig farið ítarlega yfir mataræði Hafþórs Júlíusar en hann borðar um 11.489 kaloríur á dag.
Ástríkur, smáhundur Hafþórs Júlíusar, vakti athygli erlendra miðla fyrir skömmu en hundurinn er með um 21.100 fylgjendur á samfélagsmiðlinum Instagram.
Frétt mbl.is - Smáhundur Hafþórs slær í gegn