Í gær var nýtt myndband við lag Hinsegin daga 2016 frumsýnt. Lagið nefnist „Við getum sameinast“ og er samið af sveitinni September. Bjartmar Þórðarson sér hins vegar um að þenja raddböndin.
Hin árlega gleðiganga, hápunktur Hinsegin daga, fer fram 6. ágúst næstkomandi, en frekari upplýsingar um dagskrá daganna er að finna á facebooksíðu Reykjavík Pride, sem og á heimasíðu Hinsegin daga.
Myndbandið má sjá hér að neðan.