„Óvissan er það sem hræðir mig mest“

Leikkonan rakaði á dögunum af sér hárið til að undirbúa …
Leikkonan rakaði á dögunum af sér hárið til að undirbúa sig fyrir geislameðferðina. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Á síðasta ári greindi leikkonan Shannen Doherty, sem líklega er þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Beverly Hills 90210, frá því að hún væri með brjóstakrabbamein.

Leikkonan hefur nú gengist undir skurðaðgerð þar sem annað brjóst hennar var fjarlægt, en í ljós kom að meinið hafði dreift sér enn frekar.

Frétt mbl.is: Myndirnar segja meira en 1000 orð

„Ég var með brjóstakrabbamein sem hafði dreift sér í eitlana, en eftir eina aðgerðina komumst við að því að frumurnar hafa hugsanlega dreift sér enn frekar,“ sagði leikkonan í samtali við ET.

„Þess vegna mun ég gangast undir lyfjameðferð, en að henni lokinni mun ég gangast undir geislameðferð.“

„Óvissan er það sem hræðir mig mest, mun lyfjameðferðin virka? Mun geislameðferðin virka? Mun ég þurfa að ganga í gegnum þetta aftur?“ játar og spyr Doherty.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að gera einhverjar ráðstafanir varðandi heilsu þína og ekki draga það of lengi. Það er í góðu lagi að gera lítið sem ekkert í einhvern tíma.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að gera einhverjar ráðstafanir varðandi heilsu þína og ekki draga það of lengi. Það er í góðu lagi að gera lítið sem ekkert í einhvern tíma.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir