Systir söngkonunnar Mariuh Carey, Alison Carey, var handtekin í bænum Suagerties á föstudaginn en hún er sökuð um að hafa stundað vændi.
Lögreglustjóri bæjarins greindi frá því að konan, sem er 55 ára gömul, hefði kynnt sig sem systur Carey eftir að hún var handtekin, en samkvæmt frétt Mirror hafa konurnar ekki átt í neinu sambandi undanfarin ár.
Þá er Alison Carey einnig sögð hafa notast við textabrot úr lagi systur sinnar „Fantasy“ til að auglýsa þjónustuna.
Fyrr á árinu greindi bróðir kvennanna, Morgan Carey, frá því söngkonan hefði neitað að borga lækniskostnað systur sinnar sem smituð er af HIV og þyrfti að gangast undir skurðaðgerð.
Frétt mbl.is: Kallar Carey norn