Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er sögð vera að braggast eftir árásina sem hún varð fyrir fyrr í mánuðinum.
Eins og alþjóð veit réðust fimm vopnaðir menn inn í hótelherbergi stjörnunnar, beindu að henni byssum og höfðu á brott með sér gríðarlega verðmæta skartgripi. Kardashian hefur látið lítið fyrir sér fara síðan ránið átti sér stað.
Heimildarmaður tímaritsins People segir að stjarnan sé öll að braggast og sé farin að líta jákvæðari augum á framtíðina, en hún hélt upp á 36 ára afmæli sitt á föstudaginn.
„Kim hélt látlausa afmælisveislu með Kanye, krökkunum, systrum sínum og mömmu. Hún virtist afar ánægð með ákvörðunina. Hún er enn að átta sig á því hvað hún vill gera í lífinu og hefur ekki í hyggju að koma fram sökum vinnunnar á næstunni. Viðhorf hennar til lífsins virðist þó vera jákvæðara og hún hefur róast mikið síðan ránið átti sér stað.“