Það hefur vart farið fram hjá neinum sem fylgst hefur með sjónvarpsþáttunum Voice USA að söngvaranir Gwen Stefani og Blake Shelton eru ástfangin upp fyrir haus. Ofurparið felldi saman hugi við vinnslu þáttanna og geta ekki með nokkru móti leynt ánægju sinni með hvort annað.
Ofurparið eyddi þakkargjörðardeginum saman ásamt báðum fjölskyldum sínum sem staðfestir alvarleika sambandsins. Bíða aðdáendur parsins nú spenntir eftir því að Shelton biðji Stefani.
Gwen Stefani deildi forsíðumyndinni með adáendum sínum sem sýnir vel kærleikann á milli parsins. Við myndina tjáir hún svo ást sína og þakklæti í orði.