Leikkonan Shannen Doherty greindi frá því á síðasta ári að hún hefði greinst með brjóstakrabbamein. Upp frá því hefur hún verið óhrædd við að veita aðdáendum sínum innsýn í baráttuna við sjúkdóminn.
Í gær hóf leikkonan geislameðferð, sem hún viðurkennir að henni þyki afar ógnvekjandi.
„Fyrsti dagur í geislameðferð. Ég lít út fyrir að vera í þann mund að forða mér, sem er nokkuð rétt lýsing,“ skrifaði leikkonan á Instagram.
„Ég óttast geislameðferðina. Eitthvað við það að sjá ekki geislann, að meðferðin sé ekki áþreifanleg og að horfa upp á þessa vél snúast í kringum mig vekur með mér ótta. Ég er viss um að ég mun venjast þessu, en eins og er hata ég þetta.“
Frétt mbl.is: „Óvissan er það sem hræðir mig mest“
A photo posted by ShannenDoherty (@theshando) on Nov 28, 2016 at 12:32pm PST