Blómsveigar hafa verið lagðir fyrir utan heimili poppstjörnunnar George Michael sem lést í gær, 53 ára að aldri. Michael bjó í þorpinu Goring við Thames-ánna í Oxfordskíri, vestur af Lundúnum.
Blómsveigar voru einnig lagðir fyrir utan glæsivillu hans, Highgate, í Lundúnum.
Frétt mbl.is: Madonna og Elton John minnast Michael
Umboðsmaður hans, Michael Lippmann, sagðist vera „eyðilagður“ vegna dauða Michael og bætti við að hann hafi fundist „liggjandi friðsamlega uppi í rúmi“.
Talið er að hann hafi látist af völdum hjartabilunar. Lögreglan sagði að krufning verði gerð og að litið sé á dauða Michael sem „óútskýrðan en ekki grunsamlegan“.
Michael ætlaði að gefa út heimildarmynd um líf sitt á næsta ári. Upptökustjórinn og lagahöfundurinn Naughty Boy var einnig að undirbúa nýja plötu með popparanum sem átti að koma út á næsta ári.
Síðast platan hans, Symphonica, fór í efsta sæti breska listans árið 2014.
Spjallþáttastjórnandinn James Corden minntist George Michael á Twitter-síðu sinni:
I've loved George Michael for as long as I can remember. He was an absolute inspiration. Always ahead of his time.
— James Corden (@JKCorden) December 25, 2016
Rokkarinn Liam Gallagher gerði slíkt hið sama:
George Michael - Praying for Time - YouTube https://t.co/Fa9pwoVkKg
— Liam Gallagher (@liamgallagher) December 26, 2016