Madonna og Elton John eru á meðal þeirra sem hafa minnst bresku poppstjörnunnar George Michael sem lést á heimili sínu í London í gær, 53 ára að aldri.
Tímaritið Billboard hefur það eftir Michael Lippman, umboðsmanni Michael, að hann hafi látist af völdum hjartabilunar.
Frétt mbl.is: George Michael látinn
„Bless vinur minn. Enn einn frábær listamaður kveður okkur. Getur árið 2016 farið til fjandans núna?,“ skrifaði Madonna á Instagram-síðu sinni. Með færslunni fylgdi myndband af henni og Michael við verðlaunaafhendingu.
Elton John birti einnig mynd af sér og Michael með orðunum: „Ég er í miklu áfalli. Ég er búinn að missa ástkæran vin. Vingjarnlegustu og örlátustu sálina og frábæran listamann."
Michael sló í gegn með Wham! á níunda áratugnum og seldi yfir 100 milljónir hljómplatna á ferli sínum. Hann vann tvenn Grammy-verðlaun og þrenn Brit-verðlaun.
Andrew Ridgeley, sem var hinn helmingur Wham!, sagðist vera með brostið hjarta vegna dauða Michael.
Aðrir þekktir tónlistarmenn sem hafa kvatt okkur á árinu eru Prince, David Bowie og Leonard Cohen. Þar að auki lést Rick Parfitt, gítarleikari Status Quao á sjúkrahúsi á Spáni á aðfangadag.
Hljómsveitin Duran Duran minnist George Michael á Twitter-síðu sinni: „2016 – enn einn hæfileikaríkur listamaður kveður. Öll okkar ást og samúð til fjölskyldu Michael.“
Hljómsveitin Spandau Ballet, sem var stofnuð seint á áttunda áratugnum skrifaði: „Við erum ótrúlega sorgmæddir vegna dauða ástkærs vinar okkar George Michael. Frábær listamaður og lagahöfundur.“
Fleiri poppstjörnur hafa minnst Michael, sem ætlaði að gefa út nýja plötu á næsta ári, auk heimildarmyndar.
„Guð minn góður, nei. Ég elska þig George. Hvíldu í friði,“ skrifaði Robbie Williams, á meðan Pixie Lott sagði að Michael hafi verið fallegur og hæfileikaríkur.
Bryan Adams tísti: „Ég trúi þessu ekki. Ótrúlegur söngvari og yndisleg manneskja, alltof ungur til að yfirgefa okkur.
La Toya Jackson skrifaði: „Þú hefur gefið heiminum stórkostlega gjöf. Þvílíkir hæfileikar. Þvílíkur missir!