Fjölskylda Michael „djúpt snortin“

Innrömmuð ljósmynd af George Michael og kerti við heimili hans.
Innrömmuð ljósmynd af George Michael og kerti við heimili hans. AFP

Fjölskylda popparans sáluga George Michael segist vera „djúpt snortin“ vegna þeirra sem hafa minnst hans með því að leggja blómvendi, kerti, blöðrur og annað fyrir fyrir utan heimilin sem hann átti.

„Fjölskyldan og nánir vinir George hafa verið afar djúpt snortin vegna ótrúlega mikillar ástúðar í hans garð á þeim klukkustundum og dögum sem hafa liðið frá dauða hans,“ sagði upplýsingafulltrúi fjölskyldunnar í yfirlýsingu.

AFP

„Þvert á sumar fregnir þá var ekkert grunsamlegt við dauða hans og við þökkum innilega þeim sem hafa, réttilega, kosið að fagna lífi hans og arfleið," sagði í yfirlýsingunni. 

AFP

Kærasti Michael, Fadi Fawaz, fann hann látinn á jóladag þegar hann ætlaði að vekja hann fyrir hádegisverð.

Sorgmæddar konur fyrir utan heimili George Michael.
Sorgmæddar konur fyrir utan heimili George Michael. AFP

„Ég fór þangað til að vekja hann en hann var bara farinn og lá friðsamlega í rúminu,“ sagði Fawaz í samtali við Daily Telegraph.

George Michael árið 2011.
George Michael árið 2011. AFP

„Hlutirnir höfðu verið mjög flóknir undanfarið en George hlakkaði til jólanna og ég líka. Núna er allt ónýtt,“ sagði Fawaz.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup