Miklar getgátur eru uppi um mögulega erfingja George Michael en hann átti engin börn sjálfur. Hins vegar átti hann fjölmörg guðbörn sem munu að öllum líkindum erfa stórar upphæðir. Ekki er vitað með vissu hversu efnaður Michael var en talið er að hann eigi eignir upp á rúman milljarð.
Meðal guðbarna hans eru Roman og Harley Moon Kemp en þau eru börn Martin Kemp sem var söngvari og bassaleikari Spandau Ballet. Kemp sendi í gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann væri eyðilagður vegna andláts vinar síns. Eiginkona Kemp er engin önnur en Shirlie Holliman sem var ein besta vinkona Michael. Kynntust þau þegar þáverandi kærasti hennar, Andrew Ridgeley, fékk hana til að syngja bakraddir og dansa með honum og Michael í hljómsveit sem þeir höfðu nýverið stofnað og kölluðu Wham!
Holliman var alla tíð náin Michael og kynnti hann hana fyrir Kemp og varð síðar guðfaðir barna þeirra. Að sögn Roman Kemp, sonar Holliman var móðir hans í nánu sambandi við Michael og var búist við að hann kæmi til þeirra í mat á jóladag.
Önnur guðbörn Michael eru meðal annars dóttir kryddpíunnar Geri Halliwell, Bluebell, en jafnframt má búast við að systur Michael, Melanie og Yioda séu í erfðaskránni ásamt kærasta hans, Fadi Fawaz og börn frænda hans en hann var einnig guðfaðir þeirra.
Michael var örlátur maður og studdi fjölmörg góðgerðarfélög þannig að búist er við að einhver hluti eigna hans renni til þeirra. Vitað er að hann átti fjórar fasteignir. Húsið í Oxfordskíri sem hann lést í, annað í London og svo íbúðir í New York og Sidney.